Nám og kennsla
Grunnskólar Reykjavíkurborgar vinna eftir aðalnámsskrá grunnskóla með Menntastefnu Reykjavíkurborgar til hliðsjónar. Meginmarkmið stefnunnar er að öll börn vaxi, dafni og uni sér saman í lýðræðislegu samfélagi sem einkennist af mannréttindum og virðingu fyrir fjölbreytileika mannlífs.
Í kraftmiklu skóla- og frístundastarfi öðlast börn og unglingar menntun og reynslu til að láta drauma sína rætast og hafa jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag.
Mentor
Mentor er upplýsingakerfi fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk skólans. Forsjáraðilar og nemendur fá aðgangsorð að Mentor. Á fjölskyldusíðunni sjá forsjáraðilar stundatöflur barna sinna, heimavinnu, námsmat, skólasókn og fleira.
Kennsluáætlanir
Í kennsluáætlunum er lýst inntaki námsins og námsmati sem gefa kennurum, nemendum og foreldrum yfirsýn um það sem fengist er við í kennslunni. Kennsluáætlanir eru í Mentor
Námsmat
Námsmat í endurskoðun
Kennsluhættir
Leiðsagnarnám er námsferli þar sem nemendur fá stuðning og leiðbeiningar til að þróa eigin hæfni og sjálfstæði í námi. Það felur í sér að kennarar veiti nemendum leiðsögn við að setja sér markmið, meta eigið nám og nýta styrkleika sína. Markmiðin þurfa að vera vel skilgreind svo nemandinn, kennarinn og aðrir sem að náminu koma hafi sama skilning á því hvað sé til marks um að markmiðum sé náð. Nemendur eru hvattir til að taka áskorunum og sýna þrautsegju í námi. Litið er á mistök sem námstækifæri og þau eðlilegur hluti af náminu. Tilgangur leiðsagnarnáms er að valdefla nemendur, svo þeir verði færir um að taka ábyrgð á eigin námi.
Viðmið um skólasókn
Mikil áhersla er lögð á stundvísi nemenda í skólanum. Öll börn og ungmenni á aldrinum 6 til 16 ára eru skólaskyld og bera foreldrar/forsjáraðilar ábyrgð á því að börnin innritist í grunnskóla, sæki skólann og stundi þar nám.
Ef misbrestur verður á skólasókn ber foreldrum/forsjáraðilum og skólanum að bregðast við. Til þess að þau viðbrögð verði sem árangursríkust hafa grunnskólarnir í Reykjavík sett sér samræmd viðmið og reglur sem þeir vinna eftir.