Hagnýtar upplýsingar
Opnunartími skólans
Skólinn er opinn alla virka daga frá klukkan 8:00. Kennsla hefst klukkan 8:30 og lýkur hjá 1.- 4. bekk klukkan 13:40 en hjá 5. og 6. bekk klukkan 14:10.
Skrifstofa
Skrifstofa skólans er opin frá 8:00 til 15:30 alla daga nema föstudaga til klukkan 15:00.
Skrifstofustjóri er Eiríkur Fannar Jónsson. Sími skólans er 411-7444 og netfang: laugarnesskoli@reykjavik.is
Nesti
Laugarnesskóli er heilsueflandi skóli og mælst er til þess að nemendur komi með hollt og gott nesti í skólann.
Íþróttir
Nemendur klæðast hefðbundnum sundfatnaði í sundtímum, sundbuxum eða sundbolum. Í íþróttatímum klæðast nemendur hefðbundnum íþróttafatnaði.
Símanotkun
Símar og önnur raftæki nemenda á að geyma í skólatösku og stilla þannig að þau gefi ekki frá sér hljóð, hvort sem er á kennslutíma eða í frímínútum.
Forfallatilkynningar
Veikindi skulu forráðamenn eða aðstandendur tilkynna áður en kennslustund hefst í Mentor eða á skrifstofu skólans í síma 411-7444. Óskir um leyfi eru skráðar í Mentor.